24.10.2026 10:38

Eyðimerkurganga verkstjórnar

Nú vildi ráðherrann hins vegar árétta að þingmálaskráin væri sérstakur mælikvarði á hennar eigin verkstjórn. Full eining væri um málin og það væri mikil breyting frá fyrri árum. 

Leiðtogar stjórnarflokkanna héldu sérstakan blaðamannafund 3. febrúar 2025 til að kynna þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Þar voru 114 mál og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra lagði sérstaka áherslu á eigin þátt í undirbúningnum. Hún hefði „lagt upp nýtt verklag“ og „fundað einslega með hverjum einasta ráðherra til að setja fram sterka þingmálaskrá“. Skráin væri trúverðug og fæli í sér „skýr skilaboð frá samstíga ríkisstjórn“.

Aldrei fyrr hafði verið boðað til blaðamannafundar í tilefni af þingmálaskrá ríkisstjórnar. Þær birtust sem fylgiskjal með stefnuræðu forsætisráðherra. Nú vildi ráðherrann hins vegar árétta að þingmálaskráin væri sérstakur mælikvarði á hennar eigin verkstjórn. Full eining væri um málin og það væri mikil breyting frá fyrri árum. Ekki fór á milli mála hverjum bæri að þakka.

Screenshot-2026-10-24-at-10.36.41Grein Hildar Sverrisdóttur í Morgunblaðinu 23. október 2026.

Í grein í Morgunblaðinu 23. október lýsti Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, bent á annan veruleika, „eyðimerkurstemningu“ yfir dagskrá alþingis, og spurði hvað liði verkstjórninni. Í frétt ríkisútvarpsins (RÚV) sama dag kom fram að aðeins hefði verið mælt fyrir rúmlega 30 af tæplega 160 málum á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar.

RÚV leitaði skýringa hjá Guðmundi Ara Sigurjónssyni, þingflokksformanni Samfylkingarinnar og nýkjörnum varaformanni flokksins. Svar hans var athyglisvert: „Það má kannski segja að við höfum verið ákveðin fórnarlömb eigin velgengni frá síðasta vori þegar við kláruðum sögulegan fjölda af málum.“

Sjálfumgleðin leyndi sér ekki frekar en hjá flokksformanninum 3. febrúar 2025. Skýringin var sú að jafnan væru mörg mál endurflutt að hausti. Vegna afkastanna í vor hefðu færri mál beðið endurflutnings núna.

Grobbsvarið var einskis virði. Ríkisstjórnin birti sjálf þingmálaskrá með tæplega 160 málum í haust, þótt ekki væri efnt til sérstaks blaðamannafundar að þessu sinni. Þegar skráin var samin vissu ráðherrarnir hvaða mál höfðu verið afgreidd um vorið. Samt boðuðu þeir þessi mál. Afgreiðsla eldri mála skýrir ekki hvers vegna nýja áætlunin skilar sér ekki inn í þingsalinn. Þar ræður eitthvað allt annað.

Guðmundur Ari greip einnig til innihaldslauss samanburðar til að rétta hlut verkstjórnarinnar. Hann sagði að þingið lyki að jafnaði afgreiðslu um 50 mála á önn og þingnefndir væru önnum kafnar. Meðaltal fyrri ára svarar þó engu um efndir ríkisstjórnar sem kynnti eigið verklag sem sérstaka framför. Forsætisráðherra kynnti sjálf þann mælikvarða sem ætti að nota. Með því myndu menn kynnast skilvirku verklagi. Þegar spurt er um árangur nú nægir ekki að segja að allt sé í hefðbundnum takti.

Að lokum grípur þingflokksformaður Samfylkingar til þess að tala um ósætti innan fyrri ríkisstjórnar. Þeir sem sátu á þingi á þeim tíma haldi að sama staða sé uppi nú. Þannig er reynt að gera reynslu gagnrýnendanna tortryggilega í stað þess að svara rökum þeirra.

Guðmundur Ari var sjálfur fyrst kjörinn á þing 30. nóvember 2024. Hann hefur enga eigin þingreynslu af samstarfi fyrri stjórnarflokka. Tilvísun hans til þess er ómálefnalegur fyrirsláttur. Eða er lýsingin á ósættinu fremur sprottin af eigin upplifun hans af stjórnarsamstarfinu sem nú er að molna í sundur?