9.2.2018

Skuldafjötrarnir hvíla enn á Grikkjum

Mogrunblaðið 9. febrúar 2018

Ögmundur Jónasson, fyrrv. ráðherra, hafði á dögunum frumkvæði að komu Zoe Konstantopoulou, fyrrverandi forseta gríska þingsins, og Diamantis Karanastasis leikstjóra til að kynna málstað Grikkja. Skuldafjötrarnir sem lagðir voru á þá eftir fjármálakreppuna haustið 2008 hafa ekki linast. Hádegisfundur með Grikkjunum í Safnahúsinu við Hverfisgötu laugardaginn 3. febrúar var fjölsóttur.

Zoe Konstantopoulou, gagnmenntaður lögfræðingur, gekk til liðs við Alexis Tsipras og vinstrisinnuðu Syriza-hreyfinguna og var kjörin á þing árið 2012. Hún helgaði sig mannréttindamálum og vænti þess að verða dómsmálaráðherra þegar Tsipras myndaði stjórn eftir kosningasigur snemma árs 2015. Hún var þess í stað kjörin þingforseti og sat á forsetastóli þar til síðsumars 2015. Þá sagði hún skilið við Tspiras vegna andstöðu hans við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu sem hann boðaði til að fá stuðning þjóðarinnar við yfirlýsta stefnu sína um að losa hana undan klafa neyðarlána þríeykisins: Seðlabanka evrunnar, framkvæmdastjórnar ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Zoe Konstantopoulou flytur mál sitt tæpitungulaust. Þegar hún var spurð um kúvendingu Tsipras og stuðning hans við lánardrottnana þrátt fyrir úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar svaraði hún með einu orði: Völd. Til að halda völdum varð hann að fara að vilja þríeykisins. Hún var spurð hvort hún berðist fyrir úrsögn Grikkja úr ESB að fordæmi Breta. Sagði hún það ekki koma til greina. Bretar vildu semja við ESB. Grikkir gætu aldrei sest að samningaborði með kúgurum sínum. Til að losna undan alræði ESB yrðu Grikkir að berjast fyrir frelsi sínu. Hún sagði að með því að ganga að kröfum þríeykisins hefðu grískir ráðamenn ritað undir dauðadóm yfir eigin þjóð. Honum yrði að rifta.

Zoe Konstantopoulou flutti skýr rök fyrir máli sínu að hætti lögfræðinga. Gagnrýni hennar í garð grískra ráðamanna og Evrópusambandsins er mjög þung. Hún er nú í forystu fyrir nýjum stjórnmálaflokki: Leið til frelsis. Hún beitir öllum ráðum til að afla málstað sínum fylgis jafnt innan Grikklands sem utan. Í því skyni stjórnar Diamantis Karanastasis til dæmis nú nýrri frjálsri sjónvarpsstöð til að færa Grikkjum óritskoðaðar innlendar og erlendar fréttir. Þau sögðu alræðið setja miðlun frétta og skoðana skorður.

Sannleiksnefnd um skuldir


Zoe Konstantopoulou vék í ræðu sinni oft að 30 manna alþjóðlegri nefnd sem hún beitti sér fyrir að var skipuð í febrúar 2015 til að rannsaka eðli skuldakreppu Grikkja. Á ensku bar hún heitið Greek Debt Truth Commission – Sannleiksnefnd um grískar skuldir. Markmiðið var að sannreyna fyrir gríska þingið og ríkisstjórn hvort þríkeykið hefði beitt lögmætum aðferðum við skuldsetningu grísku þjóðarinnar. Lauk nefndin störfum á tveimur mánuðum en Tsipras og félagar gerðu ekkert með niðurstöðurnar.

Nýlega birtist á netinu viðtal eftir Michael Nevradakis við Éric Toussaint, fræðilegan stjórnanda nefndarinnar. Hann segir að markmið þríeykisins hafi verið að bjarga erlendum og innlendum bönkum frá gjaldþroti með því að færa skuldir þeirra yfir á gríska skattgreiðendur. Þar hafi hagsmunir bankanna ráðið en ekki almennings sem hafi verið neyddur til að ábyrgjast greiðslu nýrra lána með skilyrðum sem brutu gegn alþjóðasamningum um efnahagsleg, félagsleg, menningarleg, borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Þríeykinu hafi verið þetta ljóst frá upphafi því að það hafi gefið grískum stjórnvöldum fyrirmæli um breytingar á lögum, nýja lagasetningu, niðurskurð lífeyrisréttinda og einkavæðingu. Þríeykið hafi ekki verið samverkamaður heldur stjórnandi aðgerða – hvatamaður lögbrota.

Niðurstaða Toussaints er að gríska ríkisstjórnin hafi fullan rétt til að fresta að greiða skuldina, efast um réttmæti hennar og hafna greiðslu á ólögmætum hluta hennar. Rúmlega 90% af neyðarlánunum til Grikkja hafi farið út úr Grikklandi til að gera upp við einkabanka og opinbera lánveitendur eða til að bjarga grískum bönkum. Innan við 10% nýttist til létta undir með gríska ríkinu á fjárlögum.

Toussaint segir að grípa verði til aðgerða vegna grískra skuldabréfa í Seðlabanka evrunnar (SE). Bankinn keypti þessi skuldabréf árin 2010, 2011 og 2012 með 30% afföllum. Síðan voru grísku skuldabréfin niðurskrifuð árið 2012 en SE neitaði aðild að þeirri aðgerð. Nú krefst SE endurgreiðslu bréfanna á nafnverði auk hárra vaxta, 6,5%. Á sama tíma hefur SE lánað einkabönkum fé vaxtalaust. Skuldabréfin lúta grískri löggjöf og því getur gríska þingið, að mati Toussaints, ákveðið að niðurskrifa bréfin um 50 til 80% með þeim rökum að fé skorti í þágu grísks almennings.

Toussaint telur víst að yrði þessi leið farin yrðu Grikkir úthrópaðir sem aldrei fyrr. Ástæðulaust sé að kippa sér upp við það. Þeir hafi sætt stöðugum ádrepum undanfarin sjö ár sagðir „latir“ og „óskilamenn“ vegna skatta. Með vísan til fjárhagsmála sé varla unnt að valda grísku þjóðinni meiri sársauka en gert hafi verið.

Deilan vegna Makedóníu


Undir lok ræðu sinnar í Safnahúsinu vék Zoe Konstantopoulou að útifundi og mótmælum sem voru boðuð sunnudaginn 4. febrúar á Syntagma-torgi við þinghúsið í Aþenu til að mótmæla að nágrannaríki Grikklands beri heitið Makedónía. Margir Grikkir eru þeirrar skoðunar að með þessu vakni kröfur um að héraðið Makedónía í Grikklandi verði tekið undan grískum yfirráðum.

Deilan um heitið á nágrannaríkinu hefur áratugum saman snert þjóðerniskennd Grikkja og árið 1992 söfnuðust meira en milljón manns saman á fundi í Þessalóníku, höfuðborg gríska Makedóníu-héraðs, til að mótmæla boðaðri málamiðlun sem fól í sér ríkjaheitið: Lýðveldið Makedónía. Þetta leiddi til stjórnarkreppu í Aþenu. Forsætisráðherra íhaldsmanna, Konstantinos Mitsotakis, leysti harðlínumanninn og utanríkisráðherrann, Antonis Samaras, frá embætti en varð síðan að segja af sér sjálfur. Samaras, sem síðar varð forsætisráðherra, tók þátt í mótmælunum 4. febrúar. Lögregla telur að þar hafi verið um 140.000 manns.

Í ræðu sinni setti Zoe Konstantopoulou mótmælafundinn 4. febrúar í stærra samhengi, hann snerti ekki aðeins Makedóníu-málið heldur kynni að verða upphaf að baráttu almennings gegn ríkisstjórninni sem leiddi til afsagnar hennar eins og varð 1992. Vonir stóðu til að jafnvel fleiri sæktu þennan mótmælafund nú en í Þessalóníku árið 1992. Þá hafði aldrei verið haldinn fjölmennari andstöðufundur í Grikklandi frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Stendur það met enn þann dag í dag.

Alexis Tsipras forsætisráðherra hrósaði sigri eftir mótmælin í Aþenu og sagði í yfirlýsingu: „Það reyndist óskhyggja hjá skipuleggjendum að ímynda sér að þeir fengju milljón mótmælendur. Yfirgnæfandi meirihluti Grikkja telur að öfgar eigi ekki að ráða við úrlausn utanríkismála.“

Hvort þetta sé upphaf endaloka hjá Tsipras og stjórn hans eða endaloka baráttu Zoe Konstantopoulou og félaga gegn honum og ESB-valdinu kemur í ljós.