26.6.2015

ESB tjaldar til einnar nætur

Grein í Morgunblaðinu 26. 06. 15

Þeir sem utan standa verða að átta sig á hve mikið ráðamenn innan Evrópusambandsins og valdaríkja þess hafa lagt undir vegna evrunnar til að skilja allt erfiði þeirra í þágu evrusamstarfsins. Sannfæringin um að ESB- þjóðunum sé fyrir bestu að lítið vald sé í höndum kjörinna fulltrúa á þjóðþingum en mikið miðstjórnarvald hjá embættismönnum í Brussel, ESB-þinginu og ESB-dómstólnum ræður einnig för margra.

 Ráðamenn ESB blása á óvild í garð miðstjórnarvaldsins. Þeir geta þó ekki aukið það án þess að kjósendur samþykki minna ákvörðunarvald einstakra ríkja. Þá skortir nú þung rök fyrir málstað sínum. Kenningin um að frið og farsæld sé ekki unnt að tryggja í Evrópu nema með stefnu á Bandaríki Evrópu höfðar ekki lengur til almennings. Samrunakenningin, sjálft Evrópuverkefnið, á undir högg að sækja í ESB-ríkjunum.

Fyrir skömmu kusu Pólverjar hinn 43 ára Andrzej Duda sem forseta. Þeir sem líta á sig sem víðsýna ESBsinna telja Duda heimóttarlegan íhaldsgaur. Hann er ekki aðeins andvígur upptöku evru í Póllandi heldur efast hann um að ESB sé á réttri braut. Að hann skyldi ná kjöri kom Brusselmönnum og öðrum í opna skjöldu. Sigur hans má rekja til stuðnings 62% kjósenda á aldrinum 19 til 29 ára. Jochen Bittner, stjórnmálaritstjóri þýska vikublaðsins Die Zeit, telur þetta mikla fylgi ungs fólks við Duda „váboða“ fyrir ESB í austurhluta Evrópu og segir ekki betra taka við í Grikklandi, á Spáni, Ítalíu og í Portúgal þar sem atvinnuleysi meðal ungs fólks sé 45% og meira.

 Leiðtogar evru-ríkjanna hittust mánudaginn 22. júní til að fjalla um skuldavanda Grikklands í leit að leið til að leysa hann innan evrusvæðisins. Í þýskum blöðum segir að fundurinn hafi breyst úr „ákvarð- anafundi“ í „samráðsfund“ af því að enn einu sinni bárust tillögur Grikkja alltof skömmu fyrir fundinn. Leiðtogarnir fóru í fýluferð til Brussel þótt þeir segðu almennt annað opinberlega. Nú ætla þeir að höggva á hnútinn á fundi ESB-leiðtogaráðsins sem hófst í gær og lýkur í dag (26. júní).

Bráðabirgðalausnir

David Cameron, forsætisráðherra Breta, hefur farið milli höfuðborga ESB-ríkjanna til að kynna óskir sínar um aukið vald Breta í eigin málum innan ESB. Á spýtunni hangir að verði menn ekki við óskum hans muni hann mæla gegn ESB-aðild í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem hann hefur boðað ekki síðar en 2017. Enginn trúir því að Cameron láti sverfa til stáls innan ESB heldur hagi kröfugerð eða „samningsmarkmiðum“ sínum þannig að til uppgjörs komi ekki.

Grikkir hafa árum saman rætt þjóðarhag sinn innan ESB. Þrengt hefur verið að þeim án þess að snúa þá alveg niður. Þetta verður gert áfram. Í vikunni var klifað á að fyrir lægi grundvöllur að samkomulagi. Málið er sagt ráðast af afstöðu Angelu Merkel Þýskalandskanslara og hvort Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, njóti stuðnings heima fyrir til að herða enn aðhaldið þrátt fyrir kosningaloforð um annað.

Pólitískir hagsmunir stóru aðildarríkjanna, Þýskalands og Frakklands, felast í að halda Grikkjum innan dyra. Á pólitíkina reynir á leiðtogafundinum nú eftir að þrefað hefur verið um tæknihliðskuldamálanna fram og til baka.

Það er til marks um að ákveðið hafi verið að finna pólitíska lausn að spunameistarar François Hollandes Frakklandsforseta láta berast að hann sé í raun brúarsmiðurinn á milli Merkel og Tsipras.

Cameron veit að pólitísk staða Breta innan Evrópusambandsins er sterk, fari þeir yrði stórt skarð fyrir skildi. Honum er jafnframt ljóst að hann má ekki verða afturreka með kröfur sínar. Hann fikrar sig nú til niðurstöðu sem hvorki sprengir hans eigin flokk né litið verði á sem úrslitakosti innan leiðtogaráðs ESB.

Fyrir Tsipras og Cameron finnst að lokum bráðabirgðalausn sem felur óleystan grundvallarágreining. Það er aðferð Brusselmanna. Kynntumst við Íslendingar henni í hinum misheppnuðu aðildarviðræðum. Látið var í veðri vaka að allt léki í lyndi og finna mætti tímabundna sérlausn þótt við blasti grundvallarágreiningur um sjávarútvegsmál.

Kalt mat

Grundvallarvanda ESB vegna evrunnar er lýst í yfirgripsmikilli nýrri skýrslu, Breyting eða brottför, um ESB-aðild Breta og horfur á komandi árum. Sérfræðingar ECU Group, ráðgjafarfyrirtækis um fjármál og markaði, segja þar að frá upphafi hafi kerfisgalli einkennt evru-samstarfið. Yfirburðaaðilinn innan þess, Þjóðverjar, vilji ekki bregðast við þessum galla með aðstoð við þá sem hafa orðið illa úti vegna hans, þvert á móti hafi vanda þjóða vegna ríkissjóðshalla eða ofurskulda verið svarað með kröfu um „refsingu sem felst í innri gengisfellingu og hafnað hefur verið öllum óskum um afskriftir sem kynnu að leiða af sér kostnað fyrir þýska bankakerfið“. Í skýrslunni segir einnig:

„Á einhverju stigi gerist annað tveggja. Annaðhvort verður gripið til umbóta innan evru-svæðisins til að bæta úr þessum ágöllum (með því að leggja að lokum byrðar á þýska skattgreiðendur og stofna til miklu nánara stjórnmálasambands sem raskar valdajafnvæginu innan ESB jafnvel enn frekar) eða einstakar evru-þjóðir munu fara að fordæmi Breta sem sögðu sig frá myntsamstarfinu (ERM) árið 1992, þær sjá að erfiðleikarnir eru meiri en ávinningurinn og segja sig frá samstarfinu (sem fræðilega jafngildir úrsögn úr ESB sjálfu samkvæmt gildandi sáttmálum). [] Með öðrum orðum mun samruni aukast innan evru-svæðisins eða það liðast í sundur.“

Með tímabundinni lausn á skuldavanda Grikkja er siglt hjá þessum grundvallavanda. Á það er veðjað að samrunasmiðunum takist að sannfæra evru-þjóðirnar um að sætta sig við aukið miðstjórnarvald þótt ný kynslóð fólks, full efasemda um ágæti evru og ESB, láti að sér kveða. Þá mun samruni í þágu evru aðeins auka bilið milli Breta og Brusselmanna.