Ræður og greinar

Þegar Rumsfeld lokaði Keflavíkurstöðinni - 20.10.2018

Þegar birtist vefsíða með gögnum Donalds Rumsfelds, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna frá 20. janúar 2001 til 18. desember 2006. Gögnin á síðunni staðfestu þá skoðun mína að Rumsfeld hefði ráðið úrslitum um lokun Keflavíkurstöðvarinnar. Rumsfeld segir í ævisögu sinni Known and Unknown sem kom út í febrúar 2011: "Iceland was a wake-up call for me. If it was that hard to change our posture there changes elsewhere in the world would even be more difficult (bls. 304)." Af þessum orðum má draga þá ályktun að reynsla Rumsfelds af því að loka Keflavíkurstöðinni hafi ráðið miklu um framgöngu hans annars staðar. Sagan um brottför varnarliðsins er öðrum þræði lýsing á stjórnarháttum í Washington. Hvað eftir annað erum við minnt á að stóru ríkin ráða að lokum. Viðfangsefni stjórnenda annarra ríkja er að laga sig að aðstæðum án þess að fórna megin hagsmunum þjóða sinna. Þegar Ásta Möller mæltist til þess að ég ritaði þessa grein óskaði hún þess sérstaklega að ég lýsti þætti mínum í umræðum um varnarmálin undanfarin 20 ár. Í greininni leitast ég við að verða við þeirri ósk.

Lesa meira

Rússar og Kínverjar í heiðurssæti við hringborðið - 19.10.2018

Pólitískt svipmót hringborðsins um þessar mundir tengist einkum vestnorrænu löndunum og Skotlandi.

Lesa meira

Kjarnorkuótti Norðmanna - Bretar stefna á norðurslóðir - 5.10.2018

Þetta er síðari grein af tveimur sem lýsir ótrúlega miklum breytingum í viðhorfi NATO-ríkja til öryggismála á N-Atlantshafi á skömmum tíma.
Lesa meira

Samtíminn borinn upp að fortíðinni - 4.10.2018

Þetta er umsögn um bókina Skiptidaga eftir Guðrúnu Nordal. Birtist í Morgunblaðinu 4. október 2018.

Lesa meira