18.10.2013 22:40

Föstudagur 18. 10. 13

Í morgun klukkan 08.10 var útgáfuhóf á vegum Aflsins, félags qigong iðkenda, í tilefni af útgáfu bókarinnar Gunnarsæfingarnar. Hittumst við tæplega 60 manns í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti, þar sem ég kynnti bókina.

Í fyrsta sinn hefur verið gefin út bók á íslensku um qigong, mörg þúsund ára gamlar kínverskar lífsorkuæfingar sem njóta sívaxandi vinsælda um heim allan. Bókin heitir Gunnarsæfingarnar og er þar vísað til æfingakerfis sem Gunnar Eyjólfsson, leikarinn þjóðkunni, hefur þróað og hundruð Íslendinga hafa stundað í tæpa tvo áratugi.

Qigong-æfingar eru reistar á agaðri öndun, öguðum líkamsburði og agaðri hugsun. Æfingarnar styrkja ónæmiskerfið. Með andlegu og líkamlegu jafnvægi eykst orka og heilbrigði. Æfingarnar milda sársauka og skapa viðnám gegn sjúkdómum. Með því að iðka qigong má létta daglegar áhyggjur og draga úr spennu, skapa gleði og hugarró.

Í bókinni er æfingakerfi Gunnars Eyjólfssonar lýst. Allir geta stundað Gunnarsæfingarnar, einnig þeir sem eru veikburða eða eiga erfitt með hreyfingu. Gunnar hefur um árabil leitt hugleiðslu hjá Krabbameinsfélagi Íslands. Af bókinni má læra hugleiðsluæfingar Gunnars. Þar er einnig sagt frá vaxandi áhuga á hugleiðslu meðal heilbrigðisstarfsmanna.

Höfundar eru Gunnar Eyjólfsson og Þorvaldur Ingi Jónsson auk mín.

Útgefandi er Aflinn félag qigong iðkenda á Íslandi. Félagið kynnir qigong og félagar æfa saman  reglulega eins og sagt er frá í bókinni. Bókaútgáfan Salka annast dreifingu bókarinnar.